Netárásir á kælibúnað
Í ljósi atburða síðustu daga er varða netöryggi og árásir sérstaklega beint að rekstraraðilum frysti- og kælibúnaðar viljum einbeita okkur að því að bjóða uppá úrlausnir strax til að tryggja betra öryggi í fjartengingum er varða okkar þjónustu hjá viðskiptavinum okkar.
Á mörgum stöðum hefur minna verið athugað með netöryggi en skynsamlegt hefði verið og er víða notaður fjartengibúnaður inná kerfin sem veitir lítið öryggi gegn netárásum.
Það eru tveir möguleikar í boði til að halda sama þjónustustigi á öruggari hátt:
Leið eitt væri að skipta út núverandi fjartengibúnaði fyrir öruggari búnað sem við höfum tekið í notkun hjá okkur. Þar sem við myndum koma og skipta þeim búnaði út.
Hin leiðin er að tengja okkar kerfi við net viðskiptavina bakvið eldvegg þar sem okkur er veittur fjaraðgangur og það tryggt að við getum sent út viðvaranir útaf því neti á okkar vakt. Það verður að gerast í samvinnu með tæknistjóra viðkomandi fyrirtækis.



Comments