ICEFISH
10 minutes ago
1 min read
Nú er Icefish lokið og erum við hæstánægð með sýninguna. Það var ánægjulegt að taka á móti viðskiptavinum okkar þar sem við höfðum tækifæri til að kynna okkar lausnir og ný tækifæri til að auka framleiðni í þeirra rekstri. Það vakti sérstaka ánægju hversu margir nýir gestir komu til okkar og erum við spennt fyrir þeirri vinnu sem framundan er við úrvinnslu verkefna eftir þessa daga.
Það var opið hús hjá okkur eins og hefð hefur verið, það voru vel á þriðja hundrað manns sem heimsóttu okkur og áttu virkilega skemmtilegt kvöld með okkur undir léttum tónum, góðum mat og drykk. Við erum afar þakklát fyrir allar heimsóknirnar og það traust sem okkur er sýnt.






















Comments