top of page
Search

Frost kaupir allt hlutafé í Mekatronik verkfræðistofu

  • ghh427
  • Aug 7
  • 2 min read

Kælismiðjan Frost kaupir allt hlutafé í Mekatronik verkfræðistofu. 

ree

 

Kælismiðjan Frost og Mekatronik verkfræðistofa hafa náð samkomulagi um sölu þess síðarnefnda og er hluti kaupverðs greiddur með hlutafé í Frost. Kaupin munu styðja undir enn frekari þróun inn á sjálfvirkni og stýringar hjá Frost og styrkja stöðu samstæðunnar sem ein sú öflugasta á sviði kælitækni, rafbúnaðar, hönnunar og sjálfvirkni á Íslandi. 

Í yfir 30 ár hefur Kælismiðjan Frost sérhæft sig og verið í fararbroddi í kæli- og frystitengdum iðnaði fyrir matvælaiðnaðinn með það að markmiði að skila framleiðendum og neytendum betri nýtingu og ferskara hráefnis. Á tímum mikillar þróunar í sjálfvirkni og upplýsingatækni hefur markmið Frost síðustu fimm ár verið að byggja upp og efla félagið á sviði rafmagnshönnunar, stýringa og sjálfvirkni. 

Mekaronik er ungt fyrirtæki en með áratuga reynslu starfsmanna á sviði hönnunar, sjálfvirki og stýringa á breiðu sviði iðnaðar með ríka áherslu á sjávarútveg. Fagleg viðhaldsþjónusta og breytingar í skipum ásamt þjónustu rafbúnaðar fyrir útgerðir, verksmiðjur og annan iðnað hefur verið höfuð áhersla Mekaronik sem hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á sviði hönnunar, sjálfvirkni og stýringa. 

Að fá Mekatronik inn í hópinn okkar mun rafmagnstæknideildin okkar styrkjast til muna og renna stoðum undir enn sterkari einingu þvert á öll okkar sérsvið með aukinni sérþekkingu, slagkrafti og þjónustustigi við viðskiptavini beggja félaga ásamt TG raf sem Frost keypti á seinni hluta síðasta árs. Saman geta fyrirtækin boðið upp á mun víðtækari og fjölbreyttari þjónustu á öllum sviðum starfseminnar þar sem hlúð verður að kjarnastarfsemi fyrirtækjanna sem stefnt er á að auka og efla til framtíðar. 

Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, mun taka við framkvæmdastjórn Mekatronik en að öðru leyti munu starfsmenn Mekatronik sinna verkefnum sem fyrr. Félögin munu taka sér þann tíma sem þarf til að samþætta starfsemi félagana og tryggja viðskiptavinum bestu þjónustu áfram sem áður fyrr. 

Hjá félögunum munu starfa alls 117 manns á starfstöðvum á Akureyri, Grindavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Selfossi og Kolding í Danmörku.  

 

 

Guðmundur segir afar ánægulegt að kynnast eigendum Mekatronik og finna að hjá þeim býr mikil reynsla og þekking sem að passar afar vel við hugmyndafræði okkar um aukinn fókus á rafmagns og sjáfvirknisvið til að auka við þjónustustigið hjá okkar viðskiptavinum. Að sama skapi mun reynsla og þekking Frost nýtast viðskiptavinum Mekatronik afar vel. Það er okkur tilhlökkunarefni að kynnast starfsfólki Mekatronik betur og efla okkur saman í starfi segir Guðmundur. 

 

Nánari upplýsingar veita: 

Guðmundur Hannesson,  ghh@frost.is | 864 4732 

Guðmundur Ellertsson,  gummi@mekatronik.is | 849 8491 

 
 
 

Comments


Kælismiðjan Frost ehf. | Fjölnisgata 4b - 603 Akureyri | Suðurhrauni 12b - 210 Garðabæ | Háheiði 9 - 800 Selfossi

Kolding - Denmark Tel: +354 464 9400 | frost@frost.is

RGB_FF 2010-2025-Eng-White-Horz.png

Copyright ©2025

bottom of page