RSW kerfi

RSW lestarkæling: Frost afhendir RSW lestarkælikerfi fyrir uppsjávarskip til kælingar á síld, makríl, loðnu og kolmuna.   Hönnun kerfanna fer eftir

RSW kerfi

RSWRSW lestarkæling:
Frost afhendir RSW lestarkælikerfi fyrir uppsjávarskip til kælingar á síld, makríl, loðnu og kolmuna.  
Hönnun kerfanna fer eftir aðstæðum hverju sinni en venjulega eru þau afhent sem sambyggðar einingar en einnig er hægt að setja þau saman um borð, ef aðstæður krefjast. Kerfin eru afhent með stjórnbúnaði DX-eimi, eimsvala og stimpil eða skrúfuþjöppu, allt eftir hvað hentar hverju sinni.
Auk sjálfra RSW kerfanna afhendir Frost einnig alla nauðsynlega loka fyrir sjókælikerfið ásamt stjórnbúnaði.

RSW kæling fyrir vinnsluskip:
Frost býður RSW kerfi til kælingar á afla í móttöku og vinnslu um RSW lokarborð í bolfiskskipum. Kerfin henta sérstaklega vel þar sem þarf að kæla mikið magn á skömmum tíma.
Vert er að skoða RSW kerfi sem valkost í stað krapakerfa. RSW kerfi hafa þá kosti umfram krapakerfi að vera mun einfaldari í uppbyggingu með færri hreyfanlegum  hlutum, þau krefjast því  lítils viðhalds og eftirlits og stofnkostnaður við RSW kerfi getur verið allt að helmingi lægri en við krapakerfi með sambærileg kæliafköst.
Hægt er að fá kerfin sambyggð þ.e. pressa, varmaskiptir og stjórnbúnaður sambyggt á einn ramma, eða haf helstu hluta kerfisins aðskilda ef þörf er á að koma þeim fyrir í takmörkuðu rými.

Vaktsími

Vaktsími Akureyri S. 464 9490
Vaktsími Reykjavík S. 464 9458

Kælismiðjan Frost ehf.

| Fjölnisgata 4b | 603 Akureyri | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9401 | Lyngás 20 | 210 Garðabæ | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9402 | frost@frost.is