Skip

Þjónusta við íslenska fiskiskipaflotann hefur frá upphafi verið kjölfestan í rekstri Frost. Frost hefur því komið að fjölda verkefna um borð í íslenskum

Skip

HavtindÞjónusta við íslenska fiskiskipaflotann hefur frá upphafi verið kjölfestan í rekstri Frost. Frost hefur því komið að fjölda verkefna um borð í íslenskum skipum bæði hér heima og erlendis. Það er því sama hvert verkefnið er, hvort það er kæling ísfisks fyrir vinnslu og í lest, kæling og frysting um borð í vinnsluskipum eða kæling og frysting um borð í uppsjávarskipum, þá hefur Frost áralanga reynslu í að greina þarfir viðskiptavina og skila verkefnum sem uppfylla kröfur um afköst og áreiðanleika.
Í seinni tíð hefur þjónusta við erlend skip verið vaxandi þáttur í starfssemi Frost, ber þar hæst breytingar frystikerfa úr R22 í ammoníak. Frost hefur þegar sett ný ammoníak kerfi í þrjú erlend skip, tveimur var breytt hér heima og einu í Noregi. Í þessum verkefnum hefur komið í ljós að Frost og samstarfsaðilar, Slippurinn og Rafeyri, eru fyllilega samkeppnishæf um verð og verktíma við erlendar skipasmíðastöðvar.

Skip

Eigandi /
Heimahöfn

Lýsing

Norma Mary

Onward Fishing
Aberdeen, UK

Hönnun og afhending á öllum búnaði fyrir nýtt NH3 frystikerfi auk nýrra DSI plötufrysta.

Havtind

Norland Havfiske
Melbu, Noregi

Fjarlægja eldra R22 frystikerfi, hönnun og uppsetning á nýju NH3 kerfi auk DSI plötufrysta.

Guðmundur í Nesi RE-13

Brim
Reykjavík

Endurbætur á núverandi NH3 frystikerfi og uppsetning á nýjum DSI plötufrystum.

Brimnes RE-27

Brim
Reykjavík

Endurbætur á núverandi NH3 frystikerfi og uppsetning nýrra DSI plötufrysta.

Arnar HU-1

Fisk Seafood
Skagaströnd

Afhending og tenging á SW kerfi til kælingar á fiski í móttöku og á vinnsluþilfari.

Málmey  SK-1

Fisk Seafood
Sauðárkróki

Afhending og tenging á SW kerfi til kælingar á fiski í móttöku og á vinnsluþilfari.

Gandí VE-171

Vinnslustöðin Vestmannaeyjar

Endurnýjun loka, lagna og einangrunar á vinnsluþilfari.

K. Arctander

Norland Havfiske,
Svolvær, Norway

Fjarlægja eldra R22 frystikerfi, hönnun og uppsetning á nýju NH3 kerfi auk DSI plötufrysta.

Vaktsími

Vaktsími Akureyri S. 464 9490
Vaktsími Reykjavík S. 464 9458

Kælismiðjan Frost ehf.

| Fjölnisgata 4b | 603 Akureyri | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9401 | Lyngás 20 | 210 Garðabæ | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9402 | frost@frost.is