Kælismiðjan Frost ehf. hefur yfir að ráð færanlegri frauðdælu sem hentar til einangrunar á rörum eða í lokuð rými eða á opna fleti, þar sem notað er polyurethan eða sambærileg efni.
Frost hefur í fjölda ára einangrað allar frysti og kælilagnir, sem fyrirtækið hefur sett upp.
Lagnirnar eru klæddar með álkápu og síðan er einagrun sprautað í holrúm milli röra og kápu.
Með þessum frágangi er tryggður hagkvæmur rekstur kælikerfisins og hámarks líftími lagna, auk þess sem hægt er að uppfylla ýtrustu kröfur um hreinlæti í matvælavinnslu.
Einangrunarefni:
Til einangrunar frysti og kælilagna er notað Polyurethan frauð með eftirfarandi Eiginleika:
-
- Eðlisþyngd 57,5 kg/ m3
- Varmaleiðni 0,024 W/m.K
- Brunaflokkun B3
Hægt er að fá frauðefni með aðra eiginleika, sem sniðin eru að hverju verkefni fyrir sig, sem dæmi má taka hitaþolið frauð til einagrunar hitaveitu eða gufulagna, eða eldvarnarfrauð.
Nánari upplýsingar veitir Bragi H. Kristinsson, þjónustustjóri á Akureyri
Sími: 464 9430
GSM: 894 4726
Netfang: bragi@frost.is