Nýtt frystikerfi fyrir Örfirisey RE 4.

Nýtt frystikerfi fyrir Örfirisey RE 4. HB Grandi hefur samið við Kælismiðjuna Frost ehf. um afhendingu og uppsetningu á nýju frystikerfi fyrir Örfirisey

Nýtt frystikerfi fyrir Örfirisey RE 4.

Orfirisey
HB Grandi hefur samið við Kælismiðjuna Frost ehf. um afhendingu og uppsetningu á nýju frystikerfi fyrir Örfirisey RE 4. Um er að ræða nýtt NH3 (ammoníak) frystikerfi sem kemur í stað eldra freon kerfis.
Kerfið samanstendur af þremur nýjum Grasso skrúfupressum, dælukút, títan röraeimsvölum auk annars búnaðar.
Frost hefur áður skipt út R22 freon kerfum í þremur norskum og einum breskum togara, en með breytingunum á Örfirisey er HB Grandi fyrsta íslenska útgerðin sem stígur það skref að skipta út R22 freon kerfi fyrir umhverfisvænt NH3 kerfi, en eins og kunnugt er, er notkun á R22 bönnuð eftir 2014.


Vaktsími

Vaktsími Akureyri S. 464 9490
Vaktsími Reykjavík S. 464 9458

Kælismiðjan Frost ehf.

| Fjölnisgata 4b | 603 Akureyri | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9401 | Lyngás 20 | 210 Garðabæ | Sími: 464 9400 | Fax: 464 9402 | frost@frost.is