Kælismiðjan Frost hefur tekið við umboði fyrir Thermowave plötuvarmaskipta á Íslandi.
Thermowave hefur frá 1992 framleitt plötuvarmaskipta í Berga , sem er um 80 km suður af Magdeburg í Þýskalandi.
Framleiddar eru tvær gerðir varmaskipta þ.e. með lausum plötum sem þéttar eru með pakkningum og heilsoðnir varmaskiptar.
Notkun Thermowave varmaskipta er meðal annars í:
- Kæli og frystikerfum.
- Matvælavinnslu.
- Efnavinnslu.
- Sundlaugum.
- Hitaveitum og orkuverum.
Frost sér mikil tækifæri í aukinni þjónustu við viðskiptavini sína með tilkomu samningsins við Thermowave en fyrirtækin hafa átt gott samstarf um árabil.
Á næstu vikum munu tæknimenn Frost fara á námskeið hjá Thermowave til að aukaþekkingu sína á vörum fyrirtækisins og notkunarmöguleikum.