Kælismiðjan Frost hefur verið í fararbroddi í uppbyggingu og þjónustu á kælikerfum fyrir helstu útgerðar- og matvælavinnslufyrirtæki á Íslandi frá árinu 1993.
Kælismiðjan Frost er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu og er með þjónustudeildir á tveimur stöðum, á Akureyri og í Reykjavík, sem sinna þjónustu um allt land.
Kælismiðjan Frost hefur í gegnum tíðina sinnt fjölda verkefna erlendis, m.a. í Kína, Afríku, Suður Ameríku, Rússlandi Noregi ofl. stöðum.
Frá 2006 hefur Kælismiðjan Frost átt þriðjungs hlut í Færeyska félaginu P/F Frost og sinnt mörgum verkefnum í Færeyjum.
Kælismiðjan Frost hefur hannað, sett upp og þjónustað kælikerfi fyrir flest stærri frystihús landsins, allar helstu frystigeymslur, ísverksmiðjur, rækjuverksmiðjur, kjöt- og mjólkurvinnslur, svo og kælikerfi um borð í fjölda fiskiskipa.
Kælismiðjan Frost hefur á að skipa reyndum fagmönnum í kælitækni sem hafa aflað sér yfirgripsmikillar þekkingar á kælikerfum og hefur stöðug endurmenntun og faglegur áhugi starfsmanna ekki síst átt þátt í þeim góða árangri sem fyrirtækið hefur náð á kælimarkaðnum.