CMS er þráðlaust skynjarakerfi fyrir hita, rakastig ofl.
Kerfið byggir á móðurstöð sem safnar upplýsingum frá fjölda þráðlausra skynjara, sem eru með allt að 400 m drægni.
Viðvaranir eru sendar með vefpósti og SMS skilaboðum.
Hægt er að skoða stöðu allra skynjara í gegnum netaðgang.
Kælismiðjan Frost hefur um árabil þjónustað mjólkuriðnaðinn, bæði afurðastöðvar og bændur.
Nú verður þessi þjónusta aukin með þvi að gert hefur verið samkomulag við mjólkurtankaframleiðandan Mueller um að Frost annist sölu á og þjónustu Mueller mjólkurtanka á Íslandi.
Stórt verkefni frá Noregi Slippurinn á Akureyri, Kælismiðjan Frost og Rafeyri hafa gert samning um breytingar á togaranum K. Arctander, sem er í eigu Norland Haffiske A/S, sem er hluti af Aker Seafood ASA, og gerður út frá Lofoten í Noregi.
Föstudaginn 20. nóvember kl. 12:00.
Af tilefni þess að við erum fluttir að Lyngási 20 Garðabæ, þá eru viðskiptavinir og velunnarar Kælismiðjunnar Frost ehf. boðnir velkomnir að líta við í hádeginu föstudaginn 27. nóvember og þiggja léttar veitingar.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur, kók í gleri og prins póló.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta, við hlökkum til að sjá þig.
Sigurður Bergsson og Hákon Hallgrímsson hafa verið ráðnir til starfa á sölu og tæknideild Kælismiðjunnar Frost ehf.
Óþarft er að kynna Sigurð og Hákon fyrir aðilium í kæliiðnaðinum en þeir eru vel kunnir af störfum sínum hjá Kælitækni undanfarin 10 ár.
Með tilkomu Sigurðar og Hákons verður lögð aukin áhersla á sölu og markaðsmál hjá Frost auk þess sem hægt verður að veita viðskiptavinum enn betri tækniþjónustu og ráðgköf en verið hefur.
Á undanförnum árum hefur starfsmönnum Kælismiðjunar Frost á höfuðborgarsvæðinu fjölgað jafnt og þétt í takt við aukin umsvif.
Nú er svo komið að húsnæðið við Stangarhyl 5 rúmar engan vegin þau umsvif sem fylgja starfseminni.
Dagana 9. til 12. október fara á fimmta tug starfsmanna Kælismiðjunnar Frost og makar til Færeyja.
Tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að skemmta sér með góðum vinum og félögum.
Nú er lokið vel heppnuðum breytingum og endurbótum á fiskvinnslu Aker Seafood í Stamsund í norður Noregi.
Gerðar voru ýmsar breytingar á vinnslubúnaði hússins, meðal annars settur inn nýr "Super Chiller" frá Skaganum.
Í dag fóru 6 starfsmenn Frost til Las Palmas á Kanaríeyjum, sá sjöundi bætist í hópinn í næstu viku.
Tilgangur fararinnar er að gera breytingar á frystikerfi og búnaði í einu skipa Kötlu Seafood, til að auka afköst.
Áætlað er að verkið taki 3 vikur, en einn maður frá Frost mun síðan fara með skipinu á sjó til að fylgja verkefninu eftir.